Fjarstillingar
Veldu >
Stillingar
>
Gagnastjóri
>
Stjórnandi tækis
.
Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna
stillingum, gögnum og hugbúnaði í
tækinu úr fjarlægð.
Þú getur tengst miðlara og fengið sendar
stillingar fyrir tækið þitt. Þú getur fengið
miðlarasnið og mismunandi stillingar frá
þjónustuveitunni þinni eða
upplýsingadeild. Stillingarnar kunna að
innihalda tengistillingar og aðrar
stillingar fyrir mismunandi forrit í tækinu.
Mismunandi getur verið hvaða valkostir
eru í boði.
Fjarstillingartengingin er venjulega ræst
af miðlaranum þegar uppfæra þarf
stillingar tækisins.
Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu velja
Valkostir
>
Miðlarasnið
>
Valkostir
>
Nýtt miðlarasnið
.
Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá
þjónustuveitanda þínum í
stillingarboðum. Ef ekki skaltu skilgreina
eftirfarandi:
Nafn miðlara — Færðu inn heiti
stillingamiðlarans.
Auðkenn.nr. netþjóns — Færðu inn
auðkenni stillingamiðlarans.
Lykilorð miðlara — Sláðu inn lykilorð til
að miðlarinn beri kennsl á tækið þitt.
Aðgangsstaður — Veldu aðgangsstað
sem nota á með tengingunni, eða búðu til
nýjan aðgangsstað. Þú getur einnig valið
að beðið sé um aðgangsstað í hvert sinn
sem þú tengist. Þessi stilling er aðeins í
boði ef þú hefur valið
Internet
sem gerð
flutningsmáta.
Heimaveffang — Færðu inn veffang
stillingamiðlarans.
Gátt — Færðu inn gáttarnúmer
miðlarans.
Notandanafn og Lykilorð — Sláðu inn
notandanafnið og aðgangsorðið að
stillingamiðlaranum.
Leyfa stillingar — Veldu
Já
til að leyfa
miðlaranum að hefja stillingalotu.
Samþ. allar sjálfkrafa — Veldu
Já
ef þú
vilt ekki að miðlarinn biðji þig um
staðfestingu þegar hann hefur
stillingalotu.
Sannvottun símkerfis — Veldu hvort
nota á http-sannvottun.
Notandanafn símkerfis og Lykilorð
símkerfis — Sláðu inn notandanafn og
aðgangsorð fyrir http-sannvottun. Þessi
stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið að
nota
Sannvottun símkerfis
.
42 Umsýsla gagna
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Til að tengjast miðlaranum og taka við
stillingum fyrir tækið þitt velurðu
Valkostir
>
Hefja stillingu
.
Til að skoða stillingaskrá valins sniðs
velurðu
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Til að uppfæra hugbúnað tækisins með
ljósvakaboðum velurðu
Valkostir
>
Leita
að uppfærslum
. Uppfærslan eyðir ekki
stillingum þínum. Þegar þú móttekur
uppfærslupakkann í tækinu skaltu fylgja
leiðbeiningunum á skjánum. Tækið er
endurræst þegar uppsetningunni er lokið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum
getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi
næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið
áður en uppfærslan er ræst.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið meðan á
hugbúnaðaruppfærslu stendur, jafnvel
ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er
hægt að nota það að uppfærslunni lokinni
og þegar það hefur verið endurræst. Taka
skal öryggisafrit af gögnum áður en
uppfærsla er samþykkt.