Uppsetning forrita
Veldu >
Stillingar
>
Gagnastjóri
>
Stj. forrita
.
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í
tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim
niður þegar vafrað er eða fá þær sendar
sem margmiðlunarskilaboð, sem
tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar
tengiaðferðir, svo sem Bluetooth. Hægt er
að nota Nokia Application Installer í Nokia
Ovi Suite til að setja upp forrit í tækinu.
Táknin í Forritastjórnun sýna eftirfarandi:
SIS- eða SISX-forrit
Java™-forrit
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota
forrit og annan hugbúnað frá traustum
aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed
eða forrit sem hafa verið prófuð með Java
Verified.
Fyrir uppsetningu geturðu gert
eftirfarandi:
•
Til að skoða gerð forritsins,
útgáfunúmer og seljanda eða
framleiðanda forritsins skaltu velja
Valkostir
>
Skoða upplýsingar
.
Til að birta upplýsingar um
öryggisvottorð forritsins skaltu velja
Upplýsingar:
>
Vottorð:
>
Skoða
upplýsingar
.
•
Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða
lagfæringu á forriti er aðeins hægt að
endurheimta upphaflega forritið ef
fyrir hendi er upphaflega
uppsetningarskráin eða fullkomið
afrit af hugbúnaðarpakkanum sem
var fjarlægður. Til að endurheimta
upphaflega forritið skaltu fyrst
fjarlægja forritið og setja það svo upp
aftur með því að nota upphaflegu
uppsetningarskrána eða
öryggisafritið.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að
setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar
getur tækið beðið þig um að hlaða
henni niður. Ef enginn aðgangsstaður
er tilgreindur fyrir forritið biður tækið
þig um að velja aðgangsstað.
Þegar .JAR-skráin er sótt getur
notandinn þurft að færa inn
notandanafn og lykilorð til að komast
á miðlarann. Þú getur fengið
notandanafn og lykilorð hjá söluaðila
eða framleiðanda forritsins.
Svona seturðu upp hugbúnað eða forrit:
1 Veldu >
Stillingar
>
Gagnastjóri
>
Stj. forrita
til að finna
uppsetningarskrá. Að öðrum kosti
skaltu leita að uppsetningarskrám
með Skráarstjóra eða velja
Skilaboð
>
Innhólf
og opna skilaboð
sem innihalda uppsetningarskrá.
2 Í Stjórnun forrita velurðu
Valkostir
>
Setja upp
. Í öðrum forritum velurðu
uppsetningarskrána til að hefja
uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir
tækið upplýsingar um stöðu
uppsetningarinnar. Ef þú setur upp
forrit án rafrænnar undirskriftar eða
vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú
skalt aðeins halda áfram að setja upp
forritið ef þú ert viss um uppruna þess
og innihald.
Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í
valmyndinni og velur það.
40 Umsýsla gagna
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa
verið settir upp eða fjarlægðir og hvenær
það var gert skaltu velja
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt
vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en
eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á
afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið
því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í
minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa
verið sett upp á samhæfu minniskorti.
Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið
því að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til
að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi
Suite til að taka öryggisafrit af
uppsetningarskrám og setja afritið á
samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota
skráastjórnun til að eyða
uppsetningarskránum úr minni tækisins.
Ef .sis-skráin hefur verið send sem
viðhengi í skilaboðum skal eyða
skilaboðunum úr innhólfinu.