Um Bluetooth
Bluetooth-tækni gefur notendum kost á
þráðlausri tengingu á milli tveggja
rafeindatækja sem eru í innan við 10
metra (33 feta) fjarlægð frá hvort öðru.
Hægt er að nota Bluetooth-tengingu til að
senda myndir, hreyfimyndir, texta,
nafnspjöld, minnismiða í dagbókum og til
að tengjast við önnur tæki sem nota
Bluetooth-tækni.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni
hafa samskipti með útvarpsbylgjum þurfa
tækið þitt og tækið sem það er tengt við
ekki að vera staðsett beint á móti hvort
öðru. Tækin tvö þurfa einungis að vera í
innan við 10 metra fjarlægð frá hvort
öðru. Truflanir geta þó orðið á
tengingunni vegna veggja eða annarra
rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-
tengingu virka í einu. Til dæmis er hægt
að flytja skrár úr tækinu þó að það sé tengt
við höfuðtól.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth
Specification 2.0 + EDR sem styður
eftirfarandi snið: Advanced Audio
Distribution, Audio/Video Remote Control,
Basic Imaging, Basic Printing, Device ID,
Dial-up Networking, File Transfer, Generic
Audio/Video Distribution, Generic Access,
Generic Object Exchange, Handsfree,
Human Interface Device, Headset, Object
Push, Phone Book Access, Serial Port og
SIM Access. Til að tryggja samvirkni milli
annarra tækja sem styðja Bluetooth-
tækni skal nota aukabúnað sem eru
viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund.
Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við
þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga
á rafhlöðu símans og draga úr endingu
hennar.