
Pörun tækja
Veldu >
Stillingar
>
Tenging
>
Bluetooth
.
Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu ákveða þitt eigið
lykilorð (1-16 tölustafir) og biðja notanda
hins tækisins um að nota sama lykilorð.
Tæki sem ekki hafa notandaviðmót eru
með fast lykilorð. Aðeins þarf að slá inn
lykilorðið þegar tækin eru tengd í fyrsta
skipti. Hægt er að heimila tenginguna að
pöruninni lokinni. Með því að para saman
tæki og heimila tenginguna verður
fljótlegra að koma á tengingu þar sem
ekki þarf að samþykkja tenginguna á milli
paraðra tækja í hvert skipti sem henni er
komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að
vera 16 tölustafir.
1 Veldu
Valkostir
>
Nýtt parað tæki
.
Tækið byrjar þá að leita að Bluetooth-
Tengingar 45
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

tækjum á svæðinu. Ef gögn hafa áður
verið send um Bluetooth-tengingu
birtist listi með fyrri
leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri
Bluetooth-tækjum innan svæðisins
með því að velja
Fleiri tæki
.
2 Veldu tækið sem para á tækið þitt við
og sláðu inn lykilorðið. Slá verður inn
sama lykilorð í hitt tækið.
3 Veldu
Já
til að koma alltaf sjálfkrafa á
tengingu milli tækisins þíns og annars
tækis, og
Nei
til ef þú vilt staðfesta
tenginguna í hvert skipti sem tækin
reyna að tengjast. Eftir pörunina er
tækið vistað á síðu paraðra tækja.
Til að gefa paraða tækinu gælunafn
velurðu
Valkostir
>
Gefa stuttnefni
.
Gælunafnið birtist eingöngu í þínu tæki.
Pörun er eytt með því að velja hana og svo
Valkostir
>
Eyða
. Til að eyða öllum
pörunum velurðu
Valkostir
>
Eyða
öllum
. Ef tækið er tengt við annað tæki og
pöruninni við það er eytt, er pörunin
fjarlægð strax og tengingunni er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast
sjálfkrafa við þitt tæki velurðu
Stilla sem
heimilað
. Hægt er að koma á tengingu á
milli tækisins þíns og hins tækisins án
vitneskju þinnar. Ekki þarf að samþykkja
eða heimila tenginguna sérstaklega.
Notaðu þessa stöðu fyrir þín eigin tæki,
líkt og höfuðtól eða tölvu, og tæki þeirra
sem þú þekkir og treystir. Ef þú vilt
samþykkja tengingarbeiðni frá hinu
tækinu í hvert skipti velurðu
Stilla sem
óheimilað
.
Til að nota Bluetooth-hljóðaukabúnað,
t.d. handfrjálsan Bluetooth-búnað eða
höfuðtól, þarf að para tækið við
aukabúnaðinn. Lykilorðið og aðrar
leiðbeiningar eru í notendahandbók
aukabúnaðarins. Kveiktu á
hljóðaukabúnaðinum til að tengjast við
hann. Ákveðnar gerðir hljóðaukabúnaðar
tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist
ekki skaltu opna flipann fyrir pöruð tæki,
velja aukabúnaðinn og
Valkostir
>
Tengjast við hljóðtæki
.