
Stillingar samskipana
Áður en hægt er að nota
margmiðlunarskilaboð, tölvupóst,
samstillingu, straumspilun og vafra
verður að slá inn réttar
samskipanastillingar í tækinu.
Hugsanlega hefur tækið samskipað
stillingar fyrir vafra,
margmiðlunarskilaboð, aðgangsstað og
straumspilun út frá því SIM-korti sem er
notað. Ef ekki geturðu notað
Stillingahjálpina til að samskipa stillingar.
Þú gætir fengið stillingarnar í skilaboðum
sem þú getur vistað í tækinu. Nánari
upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni
eða næsta viðurkennda söluaðila Nokia.
Þegar stillingarnar hafa borist í
stillingaboðum birtist textinn
1 ný
skilaboð
ef stillingarnar eru ekki vistaðar
og notaðar sjálfkrafa. Til að vista
stillingarnar velurðu
Sýna
>
Valkostir
>
Vista
. Þú þarft hugsanlega að slá inn PIN-
númer sem þú færð hjá þjónustuveitunni.