
Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan var hlaðin að hluta í
verksmiðjunni. Ef tækið sýnir að lítil
hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við
innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu
fyrst taka hleðslutækið úr sambandi
við tækið og síðan úr innstungunni.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í
tiltekinn tíma og þú getur notað tækið á
meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er
alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar
til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða
þar til hægt er að hringja.
Ábending: Ef þú átt gömul samhæf
Nokia-hleðslutæki geturðu notað þau
með tækinu með því að festa CA-44-
millistykkið við gamla hleðslutækið. Hægt
er að fá millistykkið sem aukabúnað.
USB-hleðsla
Hægt er að nota USB-hleðslu ef
rafmagnsinnstunga er ekki til staðar. Það
tekur lengri tíma að hlaða tækið með USB-
gagnasnúrunni. Mjög misjafnt er hvernig
USB-hleðsla virkar. Stundum líður langur
tími þar til hleðslan hefst og tækið verður
starfhæft.
Einnig er hægt að flytja gögn um USB-
gagnasnúruna á meðan tækið er hlaðið.
1 Tengdu samhæft USB-tæki við tækið
þitt með samhæfri USB-gagnasnúru.
Það fer eftir tækinu sem notað er til
hleðslu hve langur tími líður þar til
hleðslan hefst.
2 Ef kveikt er á tækinu er hægt að velja
úr USB-stillingum á skjá tækisins.