Nokia 6700 slide - Símtals­stillingar

background image

Símtalsstillingar

Símtalsstillingar

Veldu >

Stillingar

>

Stillingar

og

Sími

>

Símtöl

.

Veldu úr eftirfarandi:
Senda mitt númer — Birtir símanúmerið

þitt þeim sem þú hringir í.

Símtal í bið — Stilltu símann þannig að

þú fáir tilkynningu um símtöl sem berast

18 Símtöl

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

background image

þegar þú ert að tala í símann

(sérþjónusta).

Hafna símtali með skilab. — Sendu

textaskilaboð þegar þú hafnar símtali til

að sá sem hringir í þig viti af hverju þú gast

ekki svarað símtalinu.

Texti skilaboða — Skrifa stöðluð

textaskilaboð sem eru send þegar þú

hafnar símtali.

Eigin mynd í mót. símtali — Heimila eða

hafna myndsendingu á meðan

myndsímtali stendur.

Mynd í myndsímtali — Ef tækið sendir

ekki hreyfimynd í myndsímtölum skaltu

velja kyrrmynd sem birtist þess í stað.

Sjálfvirkt endurval — Láta tækið gera

allt að tíu tilraunir til að hringja aftur í

númer sem ekki náðist samband við. Ýttu

á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka

endurvalinu.

Sýna lengd símtala — Birta lengd

símtals meðan á því stendur.

Samantekt símtals — Birta lengd

símtals að því loknu.

Hraðval — Kveikja á hraðvali.

Takkasvar — Kveikja á takkasvari.

Lína í notkun — Þessi stilling

(sérþjónusta) er aðeins tiltæk ef SIM-

kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö

númer í áskrift. Veldu hvaða símalínu á að

nota til að hringja og senda textaskilaboð.

Það er hægt að svara símtölum á báðum

línum, burtséð frá því hvor línan hefur

verið valin. Ef þú velur

Lína 2

en hefur ekki

gerst áskrifandi að þessari sérþjónustu

geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína

2 er valin birtist táknið þegar tækið er í

biðstöðu.

Línuskipting — Til að hindra að skipt sé

á milli símalína (sérþjónusta), ef SIM-

kortið styður það. Til að breyta þessari

stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.

Leit að tengiliði — Virkja tengiliðaleit á

heimaskjánum.