
Skoðun og niðurhal myndskeiða
Tenging við kvikmyndaveitu
1 Veldu >
Forrit
>
Kvikm.banki
.
2 Til að tengjast þjónustu eða setja upp
myndefnisþjónustu velurðu
Bæta við
nýrri þjónustu
og
myndefnisþjónustu af vörulistanum.
Myndskeið skoðað
Til að skoða efnið sem þjónustan býður
upp á skaltu velja
Myndstraumar
.
Efni sumra myndefnisþjónusta er raðað í
flokka. Veldu flokk til að skoða myndskeið.
Hægt er að leita að myndskeiðum í
þjónustunni með því að velja
Leita að
myndskeiðum
. Ekki er víst að allar
þjónustur bjóði upp á leit.
Hægt er að straumspila sumar
hreyfimyndir en hlaða þarf öðrum niður í
tækið til að hægt sé að spila þær. Veldu
Valkostir
>
Sækja
til að hlaða niður
hreyfimynd. Niðurhal heldur áfram í
bakgrunninum ef forritinu er lokað.
Myndskeið sem hlaðið er niður eru vistuð
í Myndskeiðin mín.
34 Internet
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Til að straumspila myndskeið eða skoða
mynd sem hefur verið hlaðið niður
velurðu
Valkostir
>
Spila
.
Hægt er að stjórna spilaranum með
valtökkum hans og skruntakkanum
meðan myndskeið er spilað.
Viðvörun:
Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á
hóflegum hljóðstyrk og ekki halda tækinu
nærri eyranu þegar kveikt er á
hátölurunum.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Halda niðurhali áfram — Halda
niðurhali áfram sem hlé hefur verið gert á
eða sem hefur mistekist.
Hætta við niðurhal — Hætta við
niðurhal.
Sýnishorn — Forskoða myndskeið. Þessi
valkostur er í boði ef þjónustuveitan
styður hann.
Um straum — Skoða upplýsingar um
myndskeið.
Uppfæra lista — Uppfæra lista yfir
myndskeið.
Opna tengil í vafra — Opna tengil í
vafranum.
Niðurhal tímasett
Hægt er að tímasetja sjálfvirkt niðurhal
myndskeiða í þjónustu með því að velja
Valkostir
>
Áætluð niðurhöl
.
Video centre hleður daglega niður nýjum
myndskeiðum sjálfvirkt á þeim tíma sem
þú tilgreinir.
Til að hætta við tímasett niðurhal skaltu
velja
Handvirkt niðurhal
.