Öryggi tenginga
Ef öryggisvísirinn birtist á meðan
tenging er virk er gagnasendingin á milli
tækisins og netgáttarinnar eða miðlarans
dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki öryggi
gagnasendingar milli gáttarinnar og
efnisþjónsins (þar sem gögnin eru
geymd). Þjónustuveitan tryggir
gagnasendinguna milli gáttarinnar og
efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg
fyrir tiltekna þjónustu, líkt og
bankaþjónustu. Látið er vita ef uppruni
miðlarans er ekki staðfestur eða ef tækið
inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi
verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo
að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er
engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn
verður að vera með rétt, sannvottuð eða
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist.
Vottorð eru bundin tilteknum tíma. Ef
textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið
hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo að
vottorðið ætti að vera gilt skal athuga
hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf
að ganga úr skugga um að örugglega
megi treysta eiganda þess og að það
tilheyri í raun eigandanum sem
tilgreindur er.