Þráðlaus hugbúnaðaruppfærsla
Veldu >
Stillingar
>
Gagnastjóri
>
Hugb.uppf.
.
Með Uppfærslu forrita (sérþjónusta)
geturðu kannað hvort einhverjar
uppfærslur fyrir hugbúnað tækisins eru
tiltækar og hlaðið þeim niður í tækið.
Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum
getur falið í sér stórar gagnasendingar
(sérþjónusta).
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi
næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið
áður en uppfærslan er ræst.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið meðan á
hugbúnaðaruppfærslu stendur, jafnvel
ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er
hægt að nota það að uppfærslunni lokinni
og þegar það hefur verið endurræst. Taka
skal öryggisafrit af gögnum áður en
uppfærsla er samþykkt.
Þegar þú hefur uppfært hugbúnað eða
forrit tækisins með Uppfærslu forrita er
ekki víst að leiðbeiningarnar um
uppfærðu forritin í notendahandbókinni
eða í hjálpartextanum eigi lengur við.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Ræsa uppfærslu — Hlaða niður tiltækum
uppfærslum. Veldu uppfærslur af listanum
til að afmerkja tilteknar uppfærslur sem
þú vilt ekki hlaða niður.
Uppfæra í gegnum tölvu — Uppfæra
tækið með tölvu. Þessi valmöguleiki
kemur í stað valkostsins Ræsa uppfærslu
þegar uppfærslur eru eingöngu fáanlegar
með Nokia Software Updater
tölvuforritinu.
Skoða upplýsingar — Skoða upplýsingar
um uppfærslu.
Skoða fyrri uppfærslur — Skoða stöðu
eldri uppfærslna.
Stillingar — Breyta stillingum, eins og
sjálfvirka aðgangsstaðnum sem er
notaður til að hlaða niður uppfærslum.
Afsal ábyrgðar — Skoða Nokia
leyfissamninginn.
6
Hjálp
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.