Þjónusta
Ef þú vilt læra meira um hvernig nota á
vöruna eða þú ert ekki viss um hvernig
tækið virkar geturðu fundið nánari
upplýsingar á slóðinni www.nokia.com/
support eða á vefsvæði Nokia í heimalandi
þínu, www.nokia.mobi/support (í
farsíma) í hjálparforriti tækisins eða
notendahandbókinni.
Ef þetta leysir ekki vandann skaltu reyna
eitt af eftirfarandi:
•
Endurræstu tækið: slökktu á tækinu
og taktu rafhlöðuna úr því. Eftir u.þ.b.
mínútu skaltu setja rafhlöðuna aftur á
sinn stað og kveikja á tækinu.
•
Settu aftur upp upprunalegu
stillingarnar eins og lýst er í
notendahandbókinni. Skjölum og
skrám verður eytt við endurstillingu
og því skaltu taka afrit fyrst.
•
Uppfærðu hugbúnað tækisins
reglulega eins og útskýrt er í
notandahandbókinni til að fá bestu
afköst og nýja eiginleika.
Ef þetta leysir ekki vandann skaltu hafa
samband við Nokia. Sjá www.nokia.com/
repair. Ávallt skal taka öryggisafrit af
gögnum í tækinu áður en það er sent í
viðgerð.