
Um tækið
Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari
handbók er samþykkt til notkunar í (E)GSM
850, 900, 1800 og 1900 MHz símkerfi, og
UMTS 900, 1900 og 2100 MHz HSDPA og
HSUPA símkerfi. Þjónustuveitan gefur
nánari upplýsingar um símkerfi.
Tækið styður nokkrar tengingaraðferðir
og eins og við á um tölvur gæti það verið
berskjaldað fyrir vírusum og öðru
skaðlegu efni. Fara skal með gát við
meðhöndlun skilaboða, tengibeiðna, við
vefskoðun og við niðurhal. Aðeins skal
setja upp og nota þjónustu og hugbúnað
frá áreiðanlegum aðilum sem bjóða upp á
nægjanlegt öryggi og vörn, líkt og
Symbian Signed hugbúnað eða hugbúnað
sem hefur staðist Java Verified™ prófun.
Þú ættir að íhuga að setja
vírusvarnarhugbúnað og annan
öryggishugbúnað upp í tækinu og tölvum
sem tengjast við það.
Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki
og tenglar á netsíður þriðju aðila sem
gætu gert þér kleift að nálgast slíkar síður.
Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur
hvorki stuðning sinn við þær né tekur
ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast slík svæði
skaltu huga að öryggi og efni.
4
Öryggi
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

Viðvörun:
Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,
annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á
tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar
notkun þráðlausra tækja getur valdið
truflun eða hættu.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum
lögum og virða staðbundnar venjur,
einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t.
höfundarrétt. Varnir vegna
höfundarréttar geta hindrað afritun,
breytingu eða flutning sumra mynda,
tónlistar og annars efnis.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar
mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru
í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa
notendahandbók þess vandlega, einkum
upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja
saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta
öðruvísi út en á skjá tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er
að finna í notendahandbókinni.